Ágætis Byrjun (Acoustic) Lyrics

Sigur RáƒÂ³s

Non-album songs

Lyrics to Ágætis Byrjun (Acoustic)
Bjartar vonir rætast
er við göngum bæinn
brosum og hlæjum glaðir

Vinátta og þreyta mætast
höldum upp á daginn
og fögnum tveggja ára bið

Fjarlægur draumur rættist

Borðum og drekkum saddir
og borgum fyrir okkur
með því sem við eigum í dag

Setjumst niður spenntir
hlustum á sjálfa okkur slá
í takt við tónlistina

Það virðist enginn hlusta

Þetta er allt öðruvísi
við lifðum í öðrum heimi
þar sem vorum aldrei ósýnileg

Nokkrum dögum síðar
við tölum saman á ný
en hljóðið var ekki gott

Við vorum sammála um það
sammála um flesta hluti
við munum gera betur næst

Þetta er ágætis byrjun
Songwriters: SVEINSSON, KJARTAN / BIRGISSON, JON THOR / HOLM, GEORG / GUNNARSSON, AGUST AEVAR
Publisher: Lyrics © Universal Music Publishing Group
Powered by LyricFind